Íþróttir

Heimavöllur Eyjamanna 
á gosári var 
í Njarðvík
Ólafur Thordersen afhenti Hermanni Kr. Jónssyni, stjórnarmanni ÍBV árið 1973, myndina fyrir leik ÍBV og UMFN á Hásteinsvelli.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 16. ágúst 2024 kl. 06:19

Heimavöllur Eyjamanna 
á gosári var 
í Njarðvík

Njarðvíkingar gáfu Eyjamönnum mynd til minningar um heimavöllinn í Njarðvík

Fyrir Þjóðhátíðarleik ÍBV og Njarðvíkur þann 3. ágúst sl. afhenti Ólafur Thordersen, fyrir hönd UMFN, forsvarsmönnum ÍBV mynd frá árinu 1973 en þá fengu Eyjamenn knattspyrnuvöll Njarðvíkinga fyrir heimavöll í kjölfar eldgosins í Heimaey.

Njarðvíkurvöllur varð hálfgerður „Mekka“ fyrir Eyjafólk þetta sumarið, þar sem fólk fjölmennti á leiki ÍBV, kom langar vegalengdir og varð liðið einskonar sameiningartákn Eyjamanna.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þetta sumarið spiluðu Eyjamenn 14 leiki, unnu átta, gerðu eitt jafntefli og töpuðu fimm. Eini tapleikur á Njarðvíkurvellinum kom gegn „nágrönnunum“ úr Keflavík.

Ólafur afhenti myndina í hálfleik á þjóðhátíðarleiknum og var vel tekið í þetta skemmtilega framtak.

Hér að neðan má sjá úrklippu úr Morgunblaðinu í leik ÍBV og ÍBK á Njarðvíkurvellinum í júní 1973 en þetta var eini leikurinn sem Eyjamenn töpuðu í deildinni þetta ár. Keflavík - gullaldarliðið - varð Íslandsmeistari í lok tímabils.